Alþjóðaflugvöllur á Vestfjörðum

Ég hef verið í talsverðu sambandi við fyrirtæki í Kanada sem sérhæfir sig í að þjónusta allan þann fjölda skemmtiferðaskipa, sem sigla hingað norður.  Ferðir með þessum skipum eru mjög dýrar og að sama skapi gera farþegar kröfur um að allt sé 100% miðað við þær upplýsingar sem það fékk þegar ferðin var keypt.  Þetta eru mest moldríkir ellilífeyrisþegar sem fara í þessar ferðir og um borð í skipin má ekki vanta einn einasta hlut.  Þetta kanadíska fyrirtæki hefur yfir að ráða 10-15 þyrlum sem geta flogið 350 sjómílur á haf út og til baka aftur án þess að taka eldsneyti.  Þetta fyrirtæki þarf vegna þjónustu sinnar að vera með mikla birgðageymslur í landi og tilbúið að útvega nánast hvað sem er.  Fyrirtækið hefur reynt að fá aðstöðu á íslandi en ekkert gengið vegna þess að þeir þurfa svokallað tollfrjálst svæði.  Þegar við fórum að kynna okkar hugmyndir um fríríkið Vestfirði, þá settu þeir sig í samband við mig og eru tilbúnir að reisa þyrlupalla víða á Vestfjörðum og eins byggja nýja höfn í Arnarfirði og þeir hafa einnig áhuga á að gera Bíldudalsflugvöll að alþjóðaflugvelli og kosta stækkun hans svo þar gætu lent þotur af stærstu gerð og einnig hótel sem myndi hýsa þeirra starfsmenn.  Þetta er bara eitt dæmið af mörgum sem við höfum í hendi varðandi ný störf í hinu nýja fríríki Vestfirðir.  Svona kemur þetta hægt og rólega ef rétt er haldið á spilunum.

Jakob Kristinsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

omfg þið rúllið bbv!! ÁFRAM VESTFIRÐIR!! NIÐUR MEÐ RÍKISTJÓRNINA Á ÍSLANDI OG ÞESSA BÉVÍTANS RÚSSA!!

,.+*°^°*+., (IP-tala skráð) 20.4.2008 kl. 13:35

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

ÞEtta er aldeilis frábært að heyra Jakob.  Áfram Vestfirðir.  Við rúlum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.4.2008 kl. 15:20

3 Smámynd: Jakob Kristinsson

Já Ásthildur það mun ekkert stoppa okkur og þetta SKAL VERÐA AÐ VERULEIKA

Jakob Kristinsson, 21.4.2008 kl. 08:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jakob Kristinsson

Höfundur

Jakob Kristinsson
Jakob Kristinsson

Þetta er síða BBV-samtakanna og hér er öllum leyft að skrifa og koma með hugmyndir

Til að skrá sig inn er Notendanafn: bbv1950 og lykilorð 231122 Þeir sem vilja vera félagar í þessum samtökum, skrá sig inn og er nóg að skrifa nafn, heimilisfang og kennitölu.  Þa sem ekki hefur enn tekist að setja upp lista þar sem þeir sem vilja vera félagar í þessum samtökunum munum við nota gestabókina til þess og fólk skráir sig inn á síðuna og setur síðan nafn, heimilisfang, símanúmer og kennitölu og er þá um leið orðnir félagar í BBV-Samtökunum.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Skipaskurður 2
  • canal locks2
  • Skipaskurður
  • Tálkni
  • c documents and settings owner my documents my pictures cesil img 3810 293710

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 9623

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband