16.3.2008 | 17:32
Þetta er forsíða BBV-Samtakanna
Á þessari síðu geta allir skrifað.
Notendanafn er bbv1950
Lylilorð er 231122
Gjötið þið svo vel.
Um bloggið
Jakob Kristinsson
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk fyrir þessar upplýsingar Jakob minn ég er dálítið annað að hugsa þessa dagana þar sem fólkið mitt er að fylkjast heim í páskafrí, en ég á eftir að taka til hendinni og skrifa ég er með þetta í kollinum alla daga, get ég sagt þér.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.3.2008 kl. 12:31
Sæll Jakob minn
Hugsað til HornstrandaVíða liggja verndaranna brautir.
Vart mun sagt um þá,
að þeir hafi óttast mennskar þrautir,
eða hvarflað frá,
þótt þeim enga auðnu muni hyggja
Íslandströllin forn.
Mér er sagt þeir ætli að endurbyggja
Aðalvík og Horn.
Við sem eitt sinn áttum þarna heima
undrumst slíkan dug.
Okkur þykir þægilegt að gleyma
því sem skelfdi hug.
Gleyma ísi og útmánaðasveltu,
angri, kotungsbrag.
Muna gróðurilm og sjávarseltu,
sól og júnídag.
Hungurvofur, hrjósturbyggðir kaldar
hugdeig flýðum við.
Vitið samt: Þær eru eftir taldar
ykkur, hetjulið,
vegna þess hann afi okkar hlóð þar
ofurlítinn bæ,
vegna þess að vaggan okkar stóð þar
varin hungri og snæ.
Láttu, fóstra, napurt um þá næða
norðanélin þín,
fjörudrauga og fornar vofur hræða.
Feigum villtu sýn,
þeim, sem vilja virkjum morðsins níða
vammlaust brjóstið þitt.
Sýni þeim hver örlög böðuls bíða
bernskuríkið mitt.
Byltist, fóstra, brim í geði þungu.
Barnið leitar þín.
Legg mér hvessta orðsins egg á tungu,
eld í kvæðin mín.
Lífsins mátt og orðsins afl þar kenni
ármenn réttar þíns.
Níðings iljar alla daga brenni
eldur ljóðsins míns.
Jakobína Sigurðardóttir
Baráttukveðjur/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 21.3.2008 kl. 01:14
Hvernig skráir maður sig inn í félagið?
Baráttukveðjur,
Lárus Jóhannsson
Jakob Kristinsson, 26.3.2008 kl. 09:57
Nú er kominn tími áð að heimkynni mestu hraustmenna Íslands verði efnahagslegt stórveldi. Ég bý í Reykjavík og er kominn af Vestfirðingum sem sáu sér ekki vært að búa þar áfram. Áfram Vestfirðir!
Jakob Kristinsson, 28.3.2008 kl. 02:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.