Ný bloggsíða

Þetta er heimasíða BBV-Samtakanna, en þar sem ekki er búið að ganga frá formlegri skráningu er þetta sett upp í mínu nafni en seinna verður gerð skemmtileg heimasíða.  Til að allir geti skrifað hér og skráð sig inn þá gef ég upp notendanafn og lykilorð:

      1.   Notendanafn: bbv1950

      2.   Lykilorð: 231122

Eftirfarandi var send fjölmiðlum í dag:

FRÉTTATILKYNNING 

Nú hafa bloggarar á bloggi mbl.is tekið höndum saman og ætla að stofa samtök sem þau sammstafa BBV-Samtökin.  Þau ætla að berjast fyrir atvinnu- og mannlífi á Vestförðum.  Stöðva væntanlega olíuhreinsistöð og eru með margar hugmyndir til að auka störf. Þar sem samtökin hafa ekki verið formlega stofnuð er þetta núna á kennitölu Jakobs Kristinssonar í Sandgerði, það mun fljótlega verða opnuð heimasíða.  Þetta eru ekki flokkspólitísk samtök og hópurinn stendur saman af fólki víða af landinu og það sem sameinar þessa bloggara er að allir, ýmist eiga ættir að rekja til Vestfjarða eða eru þar búsettir.  Einnig er líka fólk sem vill styðja Vestfirði, nú þegar eru búnir að skrá sig nokkur hundruð manns.  Allar upplýsingar um þetta má lesa á blogg-síðu Jakobs, sem er jakobk.blog.is það sem þessi samtök ætla að gera er að koma með ný störf sem munu byggjast á því að nýta hina ósnortna náttúru Vestfjarða og ekki síður að sanna þjóðinni í eitt skipti fyrir öll að Vestfirðir geta staðið á eigin fótum og bjarga sínum málum sjálfir ef þeir fá til þess frið fyrir stjórnvöldum þessa lands, sem fram að þessu hafa ekkert gert til að stöðva hinn mikla fólksflótta af svæðinu og öll umræða um Vestfirði verið neikvæð og sumir telja að þar búi ekkert fólk nema sérvitringar og hugsi ekki um neitt nema úreltar atvinnugreinar eins og sjávarútveg og landbúnað og vilji ekki horfa til framtíðar.  Vestfirðir eiga nefnilega dýrmæta fjársjóði og með því að nýta þá er hægt að snúa þessari þróun við og fólk fer að vilja flytja til Vestfarða en ekki frá. 

Í undirbúningshópnum fyrir þessi nýju samtök eru: 

1.      Ásthildur Cesil Þórðardóttir, Ísafirði

2.      Jakob Kristinsson, Sandgerði

3.      Rósa Aðalsteinsdóttir , Vopnafirði   

f.h. BBV-samtökin Jakob  Kristinsson (JK)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir


Christian Glitter by www.christianglitter.com

Sæll Jakob hetjan okkar
Nú er ekki aftur snúið
Nú falla vötn öll til Dýrafjarðar og Arnarfjarðar
Áfram Vestfirðingar

Rósa Aðalsteinsdóttir, 7.3.2008 kl. 16:39

2 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Gangi ykkur vel í þessari baráttu.

Jens Sigurjónsson, 7.3.2008 kl. 16:42

3 Smámynd: Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi

Bestu óskir um gott gengi í baráttunni.

Samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi, 11.3.2008 kl. 01:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jakob Kristinsson

Höfundur

Jakob Kristinsson
Jakob Kristinsson

Þetta er síða BBV-samtakanna og hér er öllum leyft að skrifa og koma með hugmyndir

Til að skrá sig inn er Notendanafn: bbv1950 og lykilorð 231122 Þeir sem vilja vera félagar í þessum samtökum, skrá sig inn og er nóg að skrifa nafn, heimilisfang og kennitölu.  Þa sem ekki hefur enn tekist að setja upp lista þar sem þeir sem vilja vera félagar í þessum samtökunum munum við nota gestabókina til þess og fólk skráir sig inn á síðuna og setur síðan nafn, heimilisfang, símanúmer og kennitölu og er þá um leið orðnir félagar í BBV-Samtökunum.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Skipaskurður 2
  • canal locks2
  • Skipaskurður
  • Tálkni
  • c documents and settings owner my documents my pictures cesil img 3810 293710

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 9711

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband